Skoðun

Sterk, rök­föst og rétt­sýn rödd

Jakob S. Jónsson og skrifa

Í fyrsta skipti á æfinni stend ég sem kjósandi frammi fyrir valkvíða í þeim skilningi, að í framboði eru tólf auðsjáanlega mætir einstaklingar, sem allir myndu sóma sér ágætlega í embætti forseta. Vissulega yrðu þessir frambjóðendur mjög mismunandi forsetar, en enginn þeirra hefur komið þannig fyrir að ég gæti ekki með nokkru móti hugsað mér viðkomandi í húsbónda- eða húsfreyjuhlutverki á Bessastöðum. Ég þarf ekki að telja upp kosti – þeir eru öllum augljósir, sem vilja sjá.

Þó hafa örlögin hagað því svo til að ég hef unnið með einum þessara frambjóðenda í ærið vandasömu starfi – í stjórn flokksráði pólítískra samtaka, þar sem reyndi á lipurð, sanngirni og þá list sem margir segja að við Íslendingar kunnum einna síst, sem er að hlusta og láta sjá svo ekki verði um villst að mótrök hafi raunveruleg áhrif á umræðuna og niðurstöðu hennar.

Ég hef séð Katrínu Jakobsdóttur sem leiðtoga í stjórnarandstöðu og standa sig vel sem slíkur. Ég hef líka séð og heyrt Katrínu Jakobsdóttur skipta um skoðun, segja að nú sé kominn tími til að láta á reyna að hafa áhrif í samsteypustjórn – jafnvel þótt um samstarf yrði að ræða með gerólíkum stjórnmálaflokkum. Og vissulega hefur á samstarfið reynt á undanförnum sjö árum. Allt hefur ekki gengið átakalaust fyrir sig og það þarf að hafa mikið við til að annars vegar viðurkenna hið fjölskipaða stjórnvald okkar Íslendinga og hins vegar að horfa á bak mikilvægum baráttumálum í óseðjandi hít samstarfsflokkanna. En – ýmislegt hefur áunnist. Öðru hefur verið forðað frá ósigri; þannig er eðli samstarfs sem byggir á málamiðlunum og er sérstök list útaf fyrir sig, sem fáir kunna betur en Katrín Jakobsdóttir.

Enda hefur það fært henni virðingu meðal þjóðarleiðtoga, sem á eftir að færa henni ómælda forgjöf í embætti forseta, fari svo að hún beri sigur af hólmi í þeirri kosningu sem framundan er.

Þar mun hún vekja athygli sem sá þjóðhöfðingi sem hlustar – og sem slíkur verður hún einnig sá þjóðhöfðingi sem hlustað er á. Hún yrði sterk, rökföst og réttsýn rödd Íslands á alþjóðavettvangi sem og heimafyrir.

Höfundur er leiðsögumaður og leikstjóri.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Skoðun

Sjá meira


×